Martröð snillingsins

snillingur - jón hrökk upp við vondan draum í nótt. Algjöra martöð...svorthurd

Dreymdi að hann gengi inn á baðherbergi sem var langt og mjótt. Lokaði hurðinni, tók buxurnar niður og tók til við hamaganginn.

Horfði á dyrnar í fjarska.  Langt í þær.

Rak upp stór augu enda hafði gleymst að setja lásinn á. Ekki nokkur leið að teygja sig í dyrnar. Reyndi þó, en buxurnar voru snillingnum fjötur um fót. 

Hamagangurinn var kominn hálfa leið niður í postulínið þegar hurðin opnaðist... 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Hvað myndi Freud segja? ...fer kannski eftir því hver opnaði.

Óli Kr. (IP-tala skráð) 11.2.2007 kl. 23:27

2 Smámynd: snillingur-jón

Ætli Jung hefði ekki gefið þessu heitið Toilet-syndrome? En satt segirðu. Það fer allt eftir því hver kíkir inn á klóið. Það væri náttúrlega bara yndislegt ef Angelina Jolie kíkti inn og lokaði á eftir sér. En ef Siggi píka ákveður að stinga inn höfði á eftir sér, lokar og læsir á eftir sér færi eflaust hrollur um mannn....

snillingur-jón, 12.2.2007 kl. 17:02

3 Smámynd: snillingur-jón

Assogogotinn. Það er ekki hægt að laga athugasemdakerfið. Það er náttúrlega meinleg villa - næstum því Freudísk - í athugasemdinni minni. Nefni hana ekki á nafn....

snillingur-jón, 12.2.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband