Svíf í skýjum

Ský.

Er kominn með fetís fyrir skýjum. Það er nú eitthvað annað og miklu ofar en fetísinn fyrir laufum trjánna sem ég hafði fyrir nokkru og hlýtur að vera vísbending um að ég er ekki jafn helvíti jarðbundinn og græni liturinn benti til.

Sem er ágætt, enda vísaði græni liturinn í fátt annað en merki Framsóknarflokksins, það hundómerkilega ... Ég neyðist sveimérþá til að draga djúpt andann og slaka á tauginni. Verða rólegur og finna spennuna leka niður eftir astralboddíinu og útum iljarnar.

Helvítis Framsóknarmenn!

Það er eitthvað við skýin. Kann ekki almennilega skil á því enda er tilfinningin úr lausu lofti gripin, eins og gefur að skilja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband