Call me Pittsson, Snorri Brad Pittsson

Snorri Brad Pittsson

Las í Blaðinu á mánudag, að mig minnir, viðtal við íslensku karaókístjörnuna Snorra sem ég man ekki hvað heitir meira-son. Brosandi hýr og kampakátur lýsti hann jómfrúrplötunni fyrir lesendum, lögunum, textunum og útliti sínu. Sjálfur sagðist hann vera sláandi líkur bandaríska hönkleikaranum Brad Pitt.

Altso. 

Mér finnst Snorri eitthvaðson ekkert sérlega líkur Brad Pitt. Allavega ekki þeim Brad Pitt eins og testósterónkyntröllið lítur út í dag. Held að Snorri geti alveg grafið þau plön að krækja sér í eina íslenska einstæða þriggja barna Angelínu Joliedóttur. Enda á hann konu.

Nei, þegar ég sé Snorra eitthvaðson þá dettur mér alltaf í hug leikarinn Ewen Bremner þegar hann lék Spud í Trainspotting. Grannur, allt að því sjúklega mjór, renglulegur og með svo ræfilslega fætur að ég býst við að þeir brotni eins og tannstönglar undan líkamsþunganum, sem er ekki mikill fyrir.

Hann er gangandi beinagrind, myndi önnur amma mín segja um hann eins og hún sagði eittsinn um mig. Það er langt síðan hún sagði það, ár og aldir.

En dæmi hver sem vill.

Ekki ætla ég að setjast í dómarasætið.  


Nei, þetta er Snorri!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmmm, heitir skvísan ekki Angélína Jonsdóttir (pabbinn heitir jú Jon Voight). Annars tók ég þessu tali söngspírunnar í Blaðinu sem ég les aldrei sem gríni, enda stöðugt verið að segja hann sláandi líkan Stefáni Hilmars. Sem er rétt... og báðir líkir Spuddaranum.

Óli Kristján (IP-tala skráð) 6.7.2006 kl. 19:37

2 identicon

Það er gaman að lesa tékknesk slúðurblöð, þeir tala sífellt um Gwyneth Paltrowova, Angelina Jolieova o.s.frv. Við þurfum að gera e-ð svona ...

Ásgeir H (IP-tala skráð) 7.7.2006 kl. 02:12

3 identicon

Og hvað? Ólafur Ragnar Grímsonóvíts?

snillingur-jón (IP-tala skráð) 7.7.2006 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband