11.7.2006 | 15:41
Lemmy og kýlið
Ókei. Ég er mannlegur eins og Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar og restin af krádinu. Ég er ekki búinn að skrifa um tónleikana með 9/11 og Ham í NASA.
Ég skal gera það núna. Byrja á 9/11 og skrifa um Ham einhvern tíma seinna.
Get allavega minnst á það að trommarinn er örugglega eini maðurinn í heimi sem hefur verið hræddur við mig fyrir utan tvær aukunarverðar kerlingar í næstu götu við skrattans frægasta markaðinn í Barcelona sem ég man ekki hvað heitir. Þær voru frá Taílandi.
Allavega. Ég veit ekkert um 9/11 fyrir utan að þeir hafa spilað þetta einu sinni til tvisvar á Aldrei fór ég suður tónlistarhátíðinni á Ísafirði - sem er réttnefni um mig sem hef ekki farið út fyrir hringveginn frá Blönduósi síðan ég flutti þangað - og speaking of never - ég meina, þarna eru fjöll, hellingur af vatni og Gísli Súrsson!
Nema hvað. 9/11 byrjuðu vel. Eiginlega alltof vel. Byrjuðu eins og súpergrúppa sem var að uppgötvast að vesta. Mér leið líkt og ég hefði rekið nefið ofan í fjársjóð.
Þetta var svona fallegt móment þar sem maður fær eitthvað þar sem maður bjóst síst við því. Á NASA. Hélt þetta væri eitthvað retro aftanúrrassgati í afdal-band en komst svo að raun um að svo var ekki.
Allavega í fyrstu. Fyrstu lögin sem ég veit hvorki hvað heita né heyrði almennilega til að greina hvað fjölluðu um - fyrir utan melódíuna - voru afspyrnu flott. Nammi í eyrum tónlistarunnandans sem hatar Sálina hans Jóns míns og gæti ýtt Jónsa í Svörtum fötum fyrir björg.
Þetta hljómaði nýtt og ferskt. Eins og Lemmy í Motorhead í nýju holdi.
Þegar á leið fipaðist flugið. Rokkið fór af leið og lagði beint inn í kappann. Varð eftirlíking af Lemmy, og léleg í þokkabót, að mér fannst. Og rétt áður en bandið steig af sviði hafði 9/11 ekki komist með tærnar þar sem Lemmy hafði hælana. Þeir voru agnarsmáir Lemmy-ar, náðu rétt að fylla upp í kýlið á kinn hans, sem reyndar er ekkert smáræði.
Athugasemdir
ég yrði þá væntanlega kallaður til yfirheyrslu ef fyrrverandi bekkjarbróðir minn myndi ýta ennþá meira fyrrverandi bekkjarbróður mínum fyrir björg?
Ásgeir H (IP-tala skráð) 11.7.2006 kl. 17:58
Satt segirðu. Veit samt ekki hvort nokkur sakni hans. Kannski litlu stelpurnar sem teljast til aðdáenda. En þær eru 10 ára og glepjast fljótt af nýrri hljómsveit.
Ég verð líklega vistaður á Hrauninu fyrir að bjarga íslenskri alþýðu frá ömurlegri tónlist ef ég hrindi nafna fyrir björg. Ef þú kíkir í heimsókn þarftu að muna að mér finnast möffins góðar.
Blessaður, komdu líka með rassakrem. Ég verð orðinn helaumur þegar þú loksins lætur sjá þig.
snillingur-jón (IP-tala skráð) 11.7.2006 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.